4 Apríl 2008 12:00

Brot 45 ökumanna voru mynduð á Bæjarbraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarbraut í austurátt, milli Hofsstaðabrautar og Karlabrautar. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 112 ökutæki þessa akstursleið og því ók stór hluti ökumanna, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var liðlega 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tólf óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 91.    

Eftirlit lögreglunnar á Bæjarbraut er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Bæjarbraut var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.