8 Janúar 2016 18:56

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Bæjarhálsi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarháls í vesturátt, við Stuðlaháls. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 210 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 84.

Vöktun lögreglunnar á Bæjarhálsi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.