17 Mars 2016 16:50
Brot 58 ökumanna voru mynduð á Bæjarhálsi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarháls í vesturátt, að Bitruhálsi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 304 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fimm óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 79.
Vöktun lögreglunnar á Bæjarhálsi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.