17 Maí 2016 15:59

Brot 89 ökumanna voru mynduð á Bæjarhálsi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarháls í vesturátt, að Bitruhálsi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 456 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Níu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar á Bæjarhálsi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.