2 Nóvember 2017 13:23

Brot 74 ökumanna voru mynduð á Bæjarhálsi í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarháls í vesturátt, á móts við Orkuveitu Reykjavíkur. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 359 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sjö óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 84.

Vöktun lögreglunnar á Bæjarhálsi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á með hraðamælingunni stóð.