8 Nóvember 2019 15:14

Brot 61 ökumanns var myndað á Bæjarhálsi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarháls í vesturátt, á móts við Orkuveitu Reykjavíkur. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 408 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 73.

Vöktun lögreglunnar á Bæjarhálsi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.