25 Mars 2022 15:44

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Bæjarhálsi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarháls í vesturátt, á móts við Vífilfell. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 190 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 65.

Vöktun lögreglunnar á Bæjarhálsi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og mikil rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.