11 Ágúst 2010 12:00

Brot 141 ökumanns var myndað á Bæjarhálsi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarháls í vesturátt, að Stuðlahálsi. Á einni klukkustund og tuttugu mínútum, síðdegis, fóru 502 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tíu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 88.