1 Ágúst 2012 12:00

Brot 3 ökumanna voru mynduð á Bakkastöðum í Reykjavík á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bakkastaði í norðurátt, á móts við Korpuskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 15 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.  

Vöktun lögreglunnar á Bakkastöðum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.