11 September 2017 10:10

Brot 17 ökumanna voru mynduð á Barónsstíg í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Barónsstíg í norðurátt, á móts við Austurbæjarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 86 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar á Barónsstíg er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.