3 Júlí 2019 12:30

Brot 10 ökumanna voru mynduð á Barónsstíg í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Barónsstíg í suðurátt, á móts við Barónsstíg 80. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 72 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Barónsstíg er liður í umferðareftirliti á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.