29 Júní 2022 16:37

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Barónsstíg í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Barónsstíg í norðurátt, við Sundhöllina. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 98 ökutæki þessa akstursleið og því ók hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 44.

Vöktun lögreglunnar á Barónsstíg er liður í umferðareftirliti hennar  á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.