23 Febrúar 2010 12:00

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Barónsstíg í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Barnónsstíg í suðurátt, á milli Freyjugötu og Fjölnisvegar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 101 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 61.

Eftirlit lögreglunnar á Barónsstíg var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum í hverfinu en þeir hafa kvartað undan hraðakstri á þessum stað.