25 Ágúst 2010 12:00

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Barónsstíg í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Barónsstíg í norðurátt, við Austurbæjarskóla. Á tæplega 30 mínútum, eftir hádegi, fóru 47 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í fimmtungur ökumanna, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Barónsstíg er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.