28 Febrúar 2012 12:00

Brot 28 ökumanna voru mynduð á Barónsstíg í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Barónsstíg í norðurátt, gegnt Austurbæjarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 93 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Vöktun lögreglunnar á Barónsstíg er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.