22 Ágúst 2013 12:00

Brot 37 ökumanna voru mynduð á Barónsstíg í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Barónsstíg í norðurátt, við Austurbæjarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 127 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Barónsstíg er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.