27 Ágúst 2014 12:00

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Barónsstíg í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Barónsstíg í norðurátt, á móts við Austurbæjarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 129 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Barónsstíg er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.