17 Ágúst 2016 17:10

Brot 46 ökumanna voru mynduð á Bíldshöfða í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bíldshöfða í vesturátt, að Malarhöfða. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 249 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í fimmtungur ökumanna, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fimm óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 76.

Vöktun lögreglunnar á Bíldshöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.