3 Apríl 2017 13:20

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Bíldshöfða í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bíldshöfða í vesturátt, að Malarhöfða. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 199 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sjö óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 79.

Vöktun lögreglunnar á Bíldshöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.