5 Ágúst 2015 17:42

Brot 30 ökumanna voru mynduð á Bíldshöfða í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bíldshöfða í vesturátt, að Malarhöfða. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 264 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sex óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar á Bíldshöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.