15 Mars 2022 14:30

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Birkimel í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Birkimel í norðurátt, á móts við Þjóðarbókhlöðuna. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 104 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.

Vöktun lögreglunnar á Birkimel er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.