29 September 2017 09:05

Brot 21 ökumanns var myndað á Borgarholtsbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgarholtsbraut í vesturátt, á móts við Borgarholtsbraut 44. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 44 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 48%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar á Borgarholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu,en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.