9 Nóvember 2018 15:53

Brot 27 ökumanna voru mynduð á Borgarholtsbraut í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgarholtsbraut í vesturátt, á móts við Borgarholtsbraut 50. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 58 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum meirihluti ökumanna, eða 47%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sex óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 64.

Vöktun lögreglunnar á Borgarholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu,en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.