29 September 2020 09:43

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Borgarholtsbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgarholtsbraut í vesturátt, á móts við Borgarholtsbraut 50. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 60 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar á Borgarholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla (þekkt gönguleið) á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.