5 Október 2021 08:32

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Borgarholtsbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgarholtsbraut í vesturátt, á móts við Borgarholtsbraut 50. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 52 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar á Borgarholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu,en þess má geta að sólskin og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.