25 Janúar 2022 12:06

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Borgarholtsbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgarholtsbraut í vesturátt, á móts við Borgarholtsbraut 54. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 72 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 43.

Vöktun lögreglunnar á Borgarholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu,en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.