26 September 2022 09:03

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Borgarholtsbraut í Kópavogi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgarholtsbraut í vesturátt, á móts við Borgarholtsbraut 52. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 67 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 46.

Vöktun lögreglunnar á Borgarholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.