20 Maí 2009 12:00

Fjörutíu og fimm ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Borgarholtsbraut í Kópavogi á mánudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á mánudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 45 ökumanna mynduð á Borgarholtsbraut en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, rétt hjá Skólagerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 80 ökutæki þessa akstursleið og því óku 56% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrettán óku á 50 km hraða eða meira.  

Í mars var fylgst með ökutækjum á sama stað á Borgarholtsbraut og þá óku 68% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Í kjölfarið var bætt úr merkingum en það virðist duga skammt. Fyrir ári var lögreglan líka við hraðamælingar á Borgarholtsbraut en þá var leyfður hámarkshraði 50 og því ekki hægt að bera niðurstöðurnar saman. Það vekur hinsvegar athygli að þá (apríl 2008) voru nær allir ökumenn til fyrirmyndar en 89 ökutæki fóru umrædda akstursleið. Aðeins einu þeirra var ekið of hratt eða yfir afskiptahraða.