11 Apríl 2012 12:00

Brot 34 ökumanna voru mynduð á Borgarholtsbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgarholtsbraut í vesturátt, að Suðurbraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 70 ökutæki þessa akstursleið og því ók um helmingur ökumanna, eða 49%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 66. 

Vöktun lögreglunnar á Borgarholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.