10 Apríl 2013 12:00

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Borgarholtsbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgarholtsbraut í vesturátt, að Suðurbraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 36 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.

Vöktun lögreglunnar á Borgarholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.