24 Júní 2015 13:55

Brot 25 ökumanna voru mynduð á Borgarholtsbraut í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgarholtsbraut í vesturátt, á móts við Borgarholtsbraut 29. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 63 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Borgarholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.