26 Mars 2009 12:00

Sextíu og fjórir ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Borgarholtsbraut í Kópavogi í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 64 ökumanna mynduð á Borgarholtsbraut en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, að Skólagerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 94 ökutæki þessa akstursleið og því óku 68% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tuttugu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 63.  

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Borgarholtsbraut. Þá var leyfður hámarkshraði 50 og því er ekki hægt að bera niðurstöðurnar saman. Ljóst er þó að niðurstaðan í gær er með öllu óásættanleg og sveitarfélagið þarf að huga að úrbótum, t.d. betri merkingum.