29 Október 2013 12:00

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Borgarvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgarveg í austurátt, að Spönginni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 170 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáeinir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Borgarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.