10 Apríl 2024 15:17

Brot 44 ökumanna voru mynduð á Borgavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgaveg í austurátt, að Víkurvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 114 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 55 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Vöktun lögreglunnar á Borgavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.