24 Apríl 2019 17:56

Brot 34 ökumanna voru mynduð á Borgavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgaveg í vesturátt, að Strandvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 177 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 73.

Vöktun lögreglunnar á Borgavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.