3 Nóvember 2022 09:29

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Borgavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgaveg í austurátt, að Víkurvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 158 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fimmtungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 73.

Vöktun lögreglunnar á Borgavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.