28 Apríl 2009 12:00

Fimmtíu og fjórir voru staðnir að hraðakstri á Borgavegi í Reykjavík í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 54 ökumanna mynduð á Borgavegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, við Gufuneskirkjugarð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 104 ökutæki þessa akstursleið og því óku 52% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Átta óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 91.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Borgavegi og þá óku 38% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var svipuð umferð um götuna (102 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var líka 66 km/klst.