20 Maí 2010 12:00

Brot 28 ökumanna voru mynduð á Borgavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgaveg í austurátt, gegnt Gufuneskirkjugarði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 97 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 78. 

Mælingarnar á í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Borgavegi var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Borgavegi en þá óku hlutfallslega fleiri, eða 52%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar 38%.