19 Nóvember 2014 12:00

Brot 30 ökumanna voru mynduð á Borgavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgaveg í vesturátt, að Strandvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 190 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75. 

Vöktun lögreglunnar á Borgavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.