5 Maí 2008 12:00

Brot 39 ökumanna voru mynduð á Borgavegi í Grafarvogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgaveg í austurátt, við Gufuneskirkjugarð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 102 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sjö óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 91.      

Eftirlit lögreglunnar á Borgavegi er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Borgavegi var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.