7 Ágúst 2015 17:52
Brot 14 ökumanna voru mynduð á Breiðhöfða í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðhöfða í suðurátt, við Dverghöfða. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 182 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.
Vöktun lögreglunnar á Breiðhöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.