22 Október 2009 12:00

Brot 46 ökumanna voru mynduð á Breiðhöfða í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðhöfða í norðurátt, að Dvergshöfða. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 211 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Átta óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 89.