14 Júlí 2016 09:36

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í Víðidal í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 477 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 99.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.