20 Mars 2014 12:00

Brot 33 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í Víðidal í austurátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 202 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 95.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.