16 Mars 2020 08:19

Brot 18 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, á móts við Rjúpufell. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 573 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 82 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 89.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.