19 Ágúst 2020 13:09

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í Víðidal í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 561 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 92.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.