11 Október 2021 12:05
Brot 74 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, á móts við Rjúpufell. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 652 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 90.
Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.