10 Ágúst 2014 12:00

Brot 38 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í Víðidal í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 458 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 82 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.