15 Desember 2021 11:33

Brot 117 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá mánudeginum 13. desember til miðvikudagsins 15. desember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurrátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á tveimur sólarhringum fóru 13.746 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 103. Tveimur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.