2 Febrúar 2015 18:42

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, á móts við Unufell. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 416 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 81 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 91.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.